
BEINSTYRKUR ER HLUTI AF HEILSUKLASANUM
og er í sama húsnæði og Heilsugæslan Höfða, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
Símanúmer: +354 5991600
Tímapantanir: mottaka@klasinn.is
Beinstyrkur hefur það markmið að fyrirbyggja beinþynningu og beinbrot af þess völdum.
Beinþynning er einkennalaus sjúkdómur þangað til að einstaklingurinn hlýtur beinþynningarbrot með tilheyrandi lífsgæðaskerðingu.
Beinþynning er sjúkdómur sem mögulegt er að fyrirbyggja sé greining fyrir hendi.
Hjá Beinstyrk er unnt að bóka tíma í beinþéttnimælingu (DEXA), blóðrannsóknir (Sameind) sem og jafnvægis og styrktarmælingu hjá Íþróttafræðing.
Við sérhæfum okkur í greiningu, ráðgjöf og meðferð sjúklinga sem eru með beingisnun eða beinþynningu.